Studíó

Félagsmenn athugið.
Allar pantanir fara nú í gegnum pöntunarkerfið. Og skila verður inn samning útlleigu studíoós

Er þetta gert til að fyrirbyggja leiðindi eða rifrildi um ábyrgð á búnaði.

Þeir dagar sem ekki er hægt að smella á eru fráteknir af öðrum, og viljum við biða félagsmenn að virða þann tíma sem aðrir hafa pantað.

það er eitt kort til sem er merkt Ljósný og sá sem er með studíóið fær það kort, þeir einu sem hafa aðgang umfram það kort eru Reynir, Guðmar, Sibbi og Baldur.

Félagsmenn eru beðnir um að fara vel með búnað og ganga frá eftir sig þegar þeir eru búnir.

  1. Nota þarf innstungu sem er jarðtengd .
  2. Notist ekki við aðstæður þar sem er raki, hætta á sprengingum eða í hættulegu andrúmslofti.
  3. Ekki nota ljósin ef þau hafa orðið fyrir falli, höggi eða bleytu fyrr en að þau hafa verið skoðuð af viðgerðarmanni.
  4. Notið ekki ljósin ef öryggi fer fyrr en ljósin hafa verið skoðuð af viðgerðarmanni.
  5. Ljósin eru hönnuð fyrir eðlilegar aðstæður, ekki mikinn kulda eða hita og má ekki nota við þannig aðstæður.
  6. Eingöngu viðurkenndir aðilar mega taka í sundur, gera við eða breyta ljósunum.
  7. Íhlutir í ljósunum innihalda mikla spennu sem getur reynst banvæn við snertingu. Spennan getur haldist í langan tíma.Tæma verður spennuna áður en nokkur viðgerð hefst.
  8. Eldfim efni má ekki setja nálægt perum meðan ljósin eru í notkun.
  9. Sérstök varfærni skal höfð í meðhöndlun ljósanna eftir notkun þar sem þau geta hitnað mikið.
  10. Ekki hindra flæði um loftgöt á meðan að á notkun stendur.
  11. Þegar skipt er um flashperu verður að aftengja ljósin frá aflgjafa í minnst 30 mínútur áður en flashperan er snert eða fjarlægð.
  12. Slökkva verður alltaf á battery áður en ljósin eru tengd eða aftengd.
  13. Skipta þarf um snúrur ef þær eru skemmdar eða slitnar.
  14. Þegar skipt er um módelljós eða öryggi skal aftengja ljósin frá aflgjafa.
  15. Alltaf skal setja eins öryggi í stað þess sem var notað.
  16. Aðeins skal nota módelljós sem eru seld með vörunúmeri frá Bowens.
  17. Ef glerhlíf er látinn í té skal ávallt nota hana.

Kortið skilast inn daginn eftir notkun fyrir hádegið.

Þrífæturnir sem fylgja ljósunum eru ekki mjög voldugir og verður því að ganga mjög varlega um ljósin. T.d. alltaf vefja rafmagssnúrunni neðst um þrífótinn því ef einhver rekst í snúruna þá eru meiri líkur á því að ljósið dragist til á gólfinu en að falli í gólfið.

Stillingar á myndavél, góðar til að byrja með
Manual, iso100, hraði 60, f11-f16 (breyta ljósopi til að fá rétta lýsingu ekki hraða, líka hægt að minka ljósmagn með því að færa ljósin fjær.

sync snúra til að tengja við myndavélina er í töskunni, stilla þarf hitt ljósið á slave, einnig hægt að stilla bæði á slave og nota flash til að virkja ljósin.
(Ef flash er notað þá gengur ekki vera stillt á TTL né 2nd curtain)

Ekki má tengja ljósin í innstungu sem er dimmer stýrð.

 
Powered by Booking Calendar
- Available
#
- Booked
#
- Pending

First Name (required):

Last Name (required):

Email (required):

Phone:

Details:

captcha

  • Text Goes Here

    • This is an area on your website where you can add text using widgets. Each of these text areas can say something different, and is very easy to change.
  • Text Goes Here

    • This is an area on your website where you can add text using widgets. Each of these text areas can say something different, and is very easy to change.

Studio Ljós og Bowens

Sælir félagar,
Núna eigum við 2 stk Bowens 90W trilitekit og ljós, eru þau notuð til að mynda í kassa, má líka nota þau til að mynda með bakgrunn og gefa þau góða birtu.

Biðst ég afsökunar á þessu með heimasíðuna en ég var að vonast til að koma með betri síðu, en það var ekki að takast þannig að síðan er búin að vera á flökti í smá tima, hef ég ákveðið að láta þessa vera alveg?:)

Dagsrká þessa veturs

Núna erum við búin að setja saman dagskrá fyrir veturinn, hún gæti breyst eitthvað .

14. sept. Kennsla í Studió ( Pétur Ljósmyndari kennir.) (staðst.Studio)
28. sept Vörukynning hjá Beco (á eftir að fá staðfest) Hjá þeim
12. okt. Almenn mæting , sýndar myndir og spjallað. (4Hæð fundarherb.)
26. okt. Kennsla á Flass og strobe (staðst.Studio)
9 nóv. Almenn mæting. (4Hæð fundarherb.)
23 nóv Ixus kennsla í Studio með ljós. (staðst.Studio)
7. des. Lokakvöld. Myndasýning og spjall (Coke & Pizzur) (staðst.Studio)

Enn þá má koma með hluti

Kæru félagar, núna þegar við erum komin með aðstöðu til að mynda og verið er að vinna við að koma upp bakgrunna og þess háttar langar mig til að auglýsa eftir props, en okkur vantar ýmislegt , t.d. stól, barstól, gamla kerru, regnhlíf, ýmislegt annað sem má nota við myndatökur. ef þið viljið lána félaginu þetta eða gefa komið því á framfæri við stjórn eða Reynir W Lord.
Powered by wordpress plugins developed by www.wpdevelop.com