Um Ljósný
Markmið félagsins:
Auka áhuga á ljósmyndun aðstoða notendur við sjálfsnám í ljósmyndun, standa fyrir ljósmyndaferðum, sýningum .
Ýta undir sköpunargleði og ljósmyndun sem listgrein.
1.Grein
Tilgangur félagsins er sameina fólk hjá Nýherja Samstæðunni með sameiginlegan áhuga á ljósmyndun, standa fyrir ýmsum viðburðum eins og ljósmyndasýningum og hópferðum, einnig að koma upp aðstöðu til að hittast og funda.
2. Grein
Tilgangi sínum hyggst félagið ná með að halda sameiginlegar ljósmyndasýningar og skapa félögum sínum tækifæri og vettvang til að hittast og læra hver af öðrum. Félagið skal halda úti vefsíðu sem m.a. heldur utan um upplýsingar um starfsemi félagsins. Að jafnaði skulu almennir félagsfundir haldnir aðra hverja viku á tímabilinu september til maí, eða frá og með fyrsta mánudegi septembermánaðar.
3.Grein
Félagið er opið öllum í Nýherjasamstæðuni sem hafa áhuga á ljósmyndun, jafnt byrjendum sem lengra komnum, félagsgjald er ákveðið á aðalfundi og skal greitt inn á reikning félagsins í byrjun hvers árs, félagsmaður sem ekki hefur greitt félagsgjald fyrir 1. febrúar fellur sjálfkrafa af félagaskrá
4.Grein
Stjórn félagsins skal skipuð 7 félagsmönnum, formanni, ritara og gjaldkera. Stjórnarmenn skulu kosnir til eins árs í senn og formann til 2 ára skal kjósa sérstaklega. Formaður boðar stjórnarmenn á stjórnarfundi þegar þurfa þykir.
5.Grein
Starfstímabil félagsins er almanaksárið. Á aðalfundi félagsins skal stjórn gera upp árangur liðins árs og leggja fram reikningafélagsins. Aðeins félagsmenn mega vera þátttakendur í aðalfundi. Til aðalfundar skal boða með minnst viku fyrirvara og skal taka fyrir hefðbundin aðalfundarstörf. Dagskrá aðalfundar skal vera sem hér segir:
1. Kjör fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar
3. Reikningar lagðir fram
4. Umræður um skýrslu og reikninga
5. Lagabreytingar
6. Félagsgjöld ákveðin
7. Önnur mál
6.Grein
Árgjald félagsins eru 3.000 krónur og telst félagsmaður ekki fullgildur nema hafa greitt félagsgjöld.
7.Grein
Rekstrarafgangi/hagnaði af starfsemi félagsins skal varið í samræmi við tilgang félagsins.
8.Grein
Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með einföldum meirihluta og renna þá eignir þess til líknarmála sem aðalfundur samþykkir.
9.Grein
Lög þessi voru samþykkt á stofnfundi félagsins og öðluðust gildi 24. febrúar 2009
Stjórn félagsins er sem hér segir.
Formaður Ljósný er Reynir W Lord (rlord@nyherji.is)
Varaformaður Hjálmtýr Guðmundsson (HG@Nyherji.is)
Meðstjórnendur eru:
Sigurður Ólafsson
Guðmar Guðmundsson (Endurskoðandi)
Kristján Eldjárn
Baldur Örn Óskarsson
Sigurbergur Hauksson